Hugmyndir sem hreyfa við fólki
MARS er alhliða auglýsinga- og markaðsstofa sem sameinar stefnu, sköpun og framkvæmd. Við verðum hluti af teyminu þínu, tökum utan um verkefnin og mótum markaðsstarf sem hefur skýran tilgang, vekur athygli og skilar árangri.




















MARS mótar stefnu, skipuleggur verkefnin og sér um framkvæmdina. Hvort sem þú þarft heildarumsjón eða öflugan samstarfsaðila á afmörkuðu sviði verður MARS hluti af teyminu þínu og sér til þess að markaðsstarfið vinni sem ein heild.
AI leitarvélar
Heildstæð markaðssetning


Heildstæð markaðssetning
Stafræn markaðssetning
Leitarvélabestun - SEO & GEO
Grafísk hönnun
TikTok
Myndbönd & ljósmyndun
Gervigreind
Heildstæð markaðssetning
Stafræn markaðssetning
Leitarvélabestun - SEO & GEO
Grafísk hönnun
TikTok
Myndbönd & ljósmyndun
Gervigreind
MARS skipuleggur og stýrir stafrænum auglýsingum á miðlum á borð við Meta, Google, Reddit, LinkedIn og ChatGPT. Með skýrum markmiðum, réttri gagnasöfnun og stöðugri bestun nýtum við auglýsingaféð þar sem það skilar mestum árangri.
Stafræn markaðssetning

MARS hjálpar fyrirtækjum að finnast þegar fólk leitar að þjónustu þeirra, vörum eða sérþekkingu, hvort sem leitin fer fram á Google eða með aðstoð gervigreindar. Með vönduðu efni, skýrri uppbyggingu og tæknilegri bestun styrkjum við sýnileikann til lengri tíma.
AI leitarvélar
Leitarvélabestun - SEO & GEO


MARS mótar hugmyndir og býr til grafískt efni sem vekur athygli, endurspeglar vörumerkið og kemur skilaboðunum skýrt til skila. Hjá MARS vinna hönnuðir, hreyfihönnuðir og textasmiðir saman að efni fyrir stafræna miðla, vefi, auglýsingar og prent.
AI leitarvélar
Grafísk hönnun
Email marketing
Paid social media content
Social media shopping
Website/blog/SEO
Content marketing
Email marketing
Paid social media content
Social media shopping
Website/blog/SEO
Content marketing
Stafræn
markaðssetning
Stafræn markaðssetning snýst ekki bara um að vera sýnilegur á netinu, heldur um að vera sýnilegur fyrir rétta fólkið, á réttum tíma og með rétt skilaboð. Við hjálpum fyrirtækjum að byggja upp stafræna markaðssetningu þar sem ólíkir miðlar vinna saman og styðja við sameiginleg markmið. Með því að sameina Google Ads, META Ads, SEO og póstlista getum við náð til fólks á mismunandi stigum kaupferlisins og skapað sterkari tengingu við vörumerkið.

MARS framleiðir TikTok-myndbönd sem fanga athygli og tala tungumál miðilsins. Frá hugmyndavinnu og handritum yfir í tökur, klippingu og birtingu sjáum við um efni sem fræðir, skemmtir eða selur.
AI leitarvélar
TikTok framleiðsla
MARS framleiðir ljósmyndir, myndbönd, reels og annað sjónrænt efni fyrir auglýsingar, samfélagsmiðla, vefsíður, viðburði og vörukynningar. Frá fyrstu hugmynd að fullunninni afurð sjáum við um allt ferlið og tryggjum að efnið hæfi vörumerkinu og miðlinum.
AI leitarvélar
Myndbönd & ljósmyndun






Gervigreind skapar ný tækifæri
Gervigreind er að breyta því hvernig fólk leitar að upplýsingum, velur vörur og tekur ákvarðanir. Hún skapar jafnframt ný tækifæri til að greina gögn, einfalda verkefni og þróa markaðsstarf.
MARS hjálpar fyrirtækjum að skilja þessa þróun, sjá hvar tækifærin liggja og nýta gervigreind á skýran og hagnýtan hátt.
Verkefni
Hugmyndir sem urðu að veruleika.



Algengar spurningar
Hvaða þjónustu býður MARS upp á?
MARS er alhliða auglýsingastofa sem sameinar stefnumótun, hugmyndavinnu og framkvæmd. Við aðstoðum meðal annars við markaðsáætlanir, herferðir, stafrænar og innlendar birtingar, hönnun, samfélagsmiðla, efnissköpun, ljósmyndun, myndbandsgerð, Leitavélabestun og gervigreind. Þjónustan er alltaf löguð að markmiðum og þörfum hvers fyrirtækis.
Þarf ég að vita nákvæmlega hvað fyrirtækið mitt þarf?
Nei. Þú þarft ekki að mæta með fullmótaða áætlun eða ákveðna hugmynd. Við byrjum alltaf á að skoða stöðuna, markmiðin og ræða hvað það er sem fyrirtækið vill ná fram. Út frá því leggjum við til skýrar aðgerðir og þá þjónustu sem raunverulega getur skilað árangri.
Getur MARS séð um allt markaðsstarfið okkar?
Já. Við getum tekið utan um markaðsstarfið í heild, allt frá stefnu og áætlanagerð yfir í framkvæmd, birtingar, efnissköpun, mælingar og eftirfylgni. Markmiðið er að tengja alla þræði saman svo markaðsstarfið verði markvissara, skilvirkara og í takt við reksturinn.
Getið þið starfað sem ytri markaðsdeild eða markaðsstjóri?
Já. MARS hefur mikla reynslu í að starfa sem ytri markaðsdeild eða taka að sér hlutverk ytri markaðsstjóra. Við vinnum náið með stjórnendum og starfsfólki, mótum stefnuna í sameiningu og sjáum til þess að verkefnin komist í framkvæmd. Þannig fær fyrirtækið aðgang að fjölbreyttri sérþekkingu án þess að þurfa að byggja upp heila markaðsdeild innanhúss.





